💛 Kærleiksprjón í Ástjarnarkirkju 💛
Ástjarnarkirkja, Kirkjuvellir 1, 221 Hafnarfjörður Kort
þri 3. nóv 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!💛 Kærleiksprjón í Ástjarnarkirkju 💛
📅 Annan hvern þriðjudag
⏰ Kl. 19:30–21:00
📍 Ástjarnarkirkja
Langar þig í notalega samveru, gott spjall og smá handavinnu? 🧶✨
Kærleiksprjón fer fram annan hvern þriðjudag í Ástjarnarkirkju kl. 19:30–21:00. Við prjónum saman, sinnum annarri handavinnu og njótum góðs félagsskapar.
Við erum líka með verkefnið „Prjónað til góðs“, þar sem við sameinum handavinnuna og kærleikann og prjónum saman af umhyggju fyrir samfélaginu. 🫶 Afraksturinn gefum við svo til þeirra sem á þurfa að halda.
🧶 Kirkjan hefur fengið mikið af fallegu garni að gjöf og hægt er að sækja garn í kirkjuna og leggja verkefninu lið með því að prjóna eitthvað fallegt úr því. Við sjáum svo til þess að það komist í góðar hendur. 💛
Öll hjartanlega velkomin! 🌿
Við hlökkum til að eiga góða stund með ykkur 💛 🧶
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband við Evu Lín, djákna Ástjarnarkirkju, á eva@astjarnarkirkja.is.