Jórunn Viðar — útgáfuhóf!

Jórunn Viðar — útgáfuhóf!

Forlagið útgáfa, Fiskislóð 39, 101 Reykjavík Kort

mán 12. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið öll velkomin í útgáfuhóf!

Í tilefni þess að komin er út ævisaga Jórunnar Viðar eftir Árna Heimi Ingólfsson verður blásið til útgáfuhófs í Bókabúð Forlagsins á Fiskislóð mánudaginn 12. október kl. 17:00.

Árni Heimir segir stuttlega frá hinu merka ævistarfi Jórunnar og áritar bækur, auk þess sem Björk Níelsdóttir söngkona flytur eitt af hinum gullfallegu lögum Jórunnar. Léttar veitingar verða í boði og bókin á sérstöku útgáfutilboði.

Við hlökkum til að sjá ykkur!

Um bókina:

Jórunn Viðar var fyrsta íslenska konan sem sótti háskólamenntun í tónsmíðum, hún braut blað sem tónskáld og átti glæstan feril sem píanóleikari. Þó var henni margt mótdrægt. Viðtökur á verkum hennar lituðust oft af því að hún var kona og í hjónabandinu fann hún sjaldan þá hvatningu eða skilning sem hefði getað fleytt henni lengra á listabrautinni.

Jórunn Viðar var brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi á 20. öld. Hér er saga hennar sögð í fyrsta sinn og byggir Árni Heimir Ingólfsson verkið að miklum hluta á óprentuðum gögnum sem aldrei hefur verið vitnað til áður, meðal annars fjölda sendibréfa. Fjallað er um æskuárin í Reykjavík, námsár í Berlín rétt fyrir síðari heimsstyrjöld og í New York á stríðsárunum — og þá glímu sem við tók eftir að heim til Íslands var komið. Bókina prýðir fjöldi ljósmynda sem hvergi hafa komið fram opinberlega.