Jólavogur | Jólagleði með Gunna og Felix í Smáralind

Jólavogur | Jólagleði með Gunna og Felix í Smáralind

Smáralind, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Kort

lau 12. des 2026 15:00

Bústaðu viðburðinn!

Jólaglaðningur frá Kópavogsbæ við jólatréð í Smáralind 🎄

Fjörkálfarnir Gunni og Felix mæta á sviðið við jólatréð í Smáralind og bjóða upp á skemmtilega stund fyrir alla fjölskylduna kl. 14:00 og 15:00 laugardaginn 12. desember 2026.

Þeir félagar eru komnir í jólaskap og ætla að syngja og skemmta gestum eins og þeim einum er lagið. Tilvalið tækifæri fyrir börn og fullorðna til að staldra við, taka undir í söngnum og njóta jólastemningarinnar saman.

Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.

Verið hjartanlega velkomin!