Jólatónleikar Kammerkórs Seltjarnarneskirkju
Seltjarnarneskirkja, Kirkjubraut 2, 170 Seltjarnarnes Kort
mið 9. des 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Á tónleikunum, sem haldnir eru í Seltjarnarneskirkju, verður flutt efnisskrá sem spannar nokkrar aldir evrópskrar kórtónlistar og endurspeglar anda aðventu og jóla.
Meginuppistaða tónleikanna eru valdir þættir úr tveimur stórvirkjum barokktímans, Jólaóratóríu Jóhanns Sebastians Bachs og Messíasi Georgs Friedrichs Händels. Úr Jólaóratóríunni verða fluttir sálmakórar og tvær aríur fyrir altrödd, þar sem íhugun og fögnuður fara saman.
Úr Messíasi verða fluttar valdar aríur ásamt kórþáttunum And the Glory of the Lord og Hallelujah. Í tónlist Händels skiptast á innileg tjáning og kraftmikill fagnaðarsöngur.
Á efnisskránni eru einnig verk eftir Tomás Luis de Victoria, Edward Elgar, Benjamin Britten og Sabaté, sem endurspegla ólíkar hefðir kórtónlistar, allt frá fjölröddun endurreisnartímans til tónlistar síðari alda.
Saman mynda verkin tónlistarlega heild þar sem kyrrð aðventunnar og fögnuður jólanna fá að njóta sín í kórsöng og einsöng.
Aðgangseyrir er 4.000 krónur
og veitingar eftir tónleika eru innifaldar í miðaverði.