Jólaskreytingar úr íslenskri náttúru

Jólaskreytingar úr íslenskri náttúru

Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

lau 5. des 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Komdu og njóttu notalegrar samverustundar þar sem við búum til fallegar jólaskreytingar úr efniviði sem íslensk náttúra hefur upp á að bjóða. Unnið verður með greinar, köngla, mosa og annað náttúrlegt efni sem gestir geta fræðst um í leiðinni.

Fríða Guðlaugsdóttir blómaskreytir mun leiðbeina gestum og gangandi.

Viðburðurinn hentar bæði fjölskyldum og þeim sem hafa gaman af handverki.

Velkomin í skapandi og notalega aðventustund! 🎄

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.

Viðburðurinn er liður í Fjölskyldustundum á laugardögum og er styrktur af menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.