Jólahúsið hennar Sonju

Jólahúsið hennar Sonju

Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

mán 7. des 2026 04:30

Bústaðu viðburðinn!

Rithöfundurinn Björg Jóna Birgisdóttir mun lesa upp úr barnabók sinni Jólahúsið hennar Sonju.

Öll hjartanlega velkomin.

Upplesturinn fer fram í barnadeildinni á 1. hæð.

Jólahúsið hennar Sonju er hlý og falleg jólasaga sem byggir á æskuminningu móður höfundar, Sonju Backman. Sagan gerist á sveitabæ við Háaleitisveg í Reykjavík um miðja síðustu öld og lýsir jólaundirbúningi, eftirvæntingu og lífi barna á tímum sem nú eru að mestu horfnir. Í sögunni fær Sonja óvænta og dýrmæta gjöf sem bræður hennar búa sjálfir til handa henni. Gjöfin verður henni afar kær og minnir á að kærleikur og umhyggja eru oft fólgin í því sem kemur beint frá hjartanu. Sagan gefur börnum innsýn í jólahald og daglegt líf fyrri tíma, um leið og hún vekur hlýjar tilfinningar og minnir á gildi samveru og kærleika. Fallegar myndir Freydísar Kristjánsdóttur, myndhöfundar glæða söguna lífi og draga fram tíðarandanum sem þá var.