JÓLAFJÖR OG FÖNDUR
Álfhólsskóli - Hjalla megin, Álfabrekka, 200 Kópavogur Kort
lau 28. nóv 2026 11:00
Bústaðu viðburðinn!Árlegt JÓLAFJÖR og föndur Foreldrafélags Álfhólsskóla verður haldið laugardaginn 28. nóv. kl. 11 - 14 í hátíðarsalnum Hjalla-megin.
Við ætlum að hafa notalega fjölskyldustund saman með skemmtilegri og hátíðlegri jólastemningu í byrjun aðventu.
Skreytum piparkökur og málum keramík og kerti.
Allir velkomnir og endilega takið vini og fjölskyldu með.
Skólakór Álfhólsskóla og Skólahljómsveit Kópavogs koma okkur í hátíðarskap.
KAFFIHÚS 9. bekkinga verður á sínum stað með vöfflur, kakó og kaffi ásamt fleira góðgæti.
Hlökkum til að sjá ykkur.
FFÁ og 9. bekkur