Jóla-Súlur
Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort
lau 5. des 2026 21:00
JólaSúlur
Enn eina ferðina mæta Súlur á Græna hattinn til þess að hringja inn jólin eins og þeim einum er lagið!
JólaSúlur hafa fest sig í sessi sem ómissandi liður í jólahaldi skemmtilegustu Norðlendinganna. Það er aldrei of seint að bætast í þann hóp og fagna jólunum sem aldrei fyrr á Græna hattinum. Súludrengir eru menn fólksins og hafa tekið þá samfélagslega ábyrgu ákvörðun að frysta miðaverð frá því í fyrra.