Jól með Brother Grass

Jól með Brother Grass

Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort

fim 10. des 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Á meðan Kári bítur kinn og frostið gegnum allt smýgur,

þá hugsum við til jólanna og ykkar kæru vinir.

Okkar desember einkennist af mandarínum,

laufabrauði og ljósadýrð, en umfram allt TÓNLIST og góðri samveru!

Eftir 12 ára vetrardvala snýr Brother Grass aftur á Græna Hattinn í desember.

Akkúrat rétti tíminn til að kíkja í geymslurnar og finna til þvottabrettið og balann, víbraslappann og allt skrítna slagverkið, jóladressin og spariskónna.

Nú er góður tími til að spila plötuna Jól.

Jól hefur víða skipað sér sess sem stór þáttur í jólaundirbúningi landsmanna með hlýjum lagasmíðum, fjölradda söng og sannri leikgleði - allt sem fangar hinn sanna jólaanda.

Forsala miða hefst lau. 26. sept kl. 10.00 á graenihatturinn.is

Brother Grass skipa:

Hildur Halldórsdóttir

Sandra Dögg Þorsteinsdóttir

Soffía Björg Óðinsdóttir

Örn Eldjárn

Ösp Eldjárn

Rautt í tá og bygg í maga?

Hlökkum til að sjá ykkur

Brother Grass