Jimi Hendrix - Heiðurstónleikar

Jimi Hendrix - Heiðurstónleikar

Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort

fös 6. nóv 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Guðmundur Pétursson, Matthías Mogensen og Björn Hlynur Haraldsson héldu nýverið tónleika á Ölveri og léku tónlist Jimi Hendrix við þvílíkar móttökur að nú hefur verið ákveðið að halda eina tónleika til viðbótar.

Það er svo sannarlega einstakur viðburður að fá að heyra og sjá Guðmund Pétursson takast á við mestu rokkgítargoðsögn allra tíma – tónlist sem hann hefur ekki leikið mikið á opinberum vettvangi á sínum langa ferli.

Bassaleikarinn Matthías Mogensen og trommuleikarinn Björn Hlynur Haraldsson skipa svo þétt ryþmapar tríósins.