Jazzhátíð Reykjavíkur í Fantasíu 25. ágúst

Jazzhátíð Reykjavíkur í Fantasíu 25. ágúst

Vinnustofa Kjarval | Fantasíusalur, Austurstræti 12, 101 Reykjavík Kort

þri. 25.08.2026 19:00

Tríó Sölva Kolbeinssonar – Collage (IS)

Þriðjudaginn 25. ágúst kl. 19:00

Fantasía (Vinnustofa Kjarval)

Kvöldpassi*

Sölvi Kolbeinsson, saxófón

Hilmar Jensson, gítar

Magnús Trygvason Eliassen, slagverk

Tríó saxófónleikarans Sölva Kolbeinssonar leikur efni af plötunni Collage sem kom út hjá Reykjavík Record Shop í lok árs 2025. Collage er fyrsta hljómplata Sölva eingöngu með eigin efni. Þetta er tilraunakenndur djass, innblásinn af tíma hans í Berlín og Kaupmannahöfn ásamt því að flytja aftur heim til Íslands. Lögin eru ólík og tákna mismunandi augnablik og myndir, hver og ein með eigin stemningu og sterk karaktereinkenni. Saman skapa myndirnar heild og þaðan kemur titill plötunnar – Collage.

Ásamt Sölva koma fram gítarleikarinn Hilmar Jensson og slagverksleikarinn Magnús Trygvason Eliassen. Tríóið varð til út frá dúói Sölva og Magnúsar en þeir voru paraðir saman við Hilmar á Djasshátíð 2020 og spiluðu þar stórskemmtilega tónleika. Til að byrja með spiluðu þeir sín uppáhalds lög eftir aðra en fókusinn færðist fljótlega yfir á tónsmíðar Sölva. Eftir fleiri tónleika og tilraunir héldu þeir í hljóðver í desember 2024. Nú er komin plata og meira á leiðinni.

Dagskrá Jazzhátíðar í Fantasíu:

Þriðjudaginn 25. ágúst

19:00 – Tríó Sölva Kolbeinssonar – Collage (IS)

20:00 – Birgir Steinn & Sólrún Mjöll – Agata (IS)

21:00 – Andrés Þór Tríó – Relocate, útgáfutónleikar (IS)

Kvöldpassi kostar 7.990 kr. í Fantasíu en við bjóðum einnig upp á afsláttarverð, 5.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 8.990 kr. Kvöldpassi veitir aðgang að öllum tónleikum kvöldsins í Fantasíu. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Fantasíu.*

Flytjendur

  • Jazzhátíð Reykjavíkur
    Jazzhátíð Reykjavíkur

    Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.

    Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.

  • Andrés Þór
    Andrés Þór

    Gítarleikari

  • Reykjavík Jazz Festival
    Reykjavík Jazz Festival

    25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026

    www.reykjavikjazz.is

  • Hilmar Jensson
    Hilmar Jensson

    Rafgítarleikari.

  • Magnús Trygvason Eliassen
    Magnús Trygvason Eliassen

    Tónlistarfólk.

  • Birgir Steinn Theodórsson
    Birgir Steinn Theodórsson

    Kontrabassaleikarinn

  • Sölvi Kolbeinsson Trio
    Sölvi Kolbeinsson Trio

    A jazz trio featuring Sölvi Kolbeinsson, Hilmar Jensson, and Magnús Trygvason Eliassen.

  • Collage
    Collage

    A project featuring original jazz compositions by Sölvi Kolbeinsson.

  • Nico Moreaux
    Nico Moreaux

    Athugið! Kvöldpassi er í boði öll kvöld hátíðarinnar í Hörpu en hann veitir aðgang að öllum tónleikum viðkomandi kvölds. Ekki er selt inn á staka tónleika á kvölddagskrá í Hörpu. Nicolas Moreaux er franskur bassaleikari, búsettur á Íslandi. Á Jazzhátíð Reykjavíkur 2022 mun hann kynna nýja tónlist eftir hann sjálfan, útsetta af Phillipe Maniez, sem hefur meðal annars unnið með Kurt Rosenwinkel Big band og Dedication big band. Á tónleikunum kemur Nicolas fram ásamt nónett sínum, sem samanstendur af íslenskum tónlistarmönnum, sem Nicolas spilar reglulega með hérlendis og erlendis. Tónlistin flakkar á milli þess að vera þenkjandi og orkumikil og er að mestu innblásin af lífi Nicolas, andagift og náttúrunni. Nico Moreaux : kontrabassi Andrés Þór Gunnlaugsson : gítar Sigurður Flosason : altó saxófónn Óskar Guðjónsson : tenór saxófónn Jóel Pálsson : tenór saxófónn Eyþór Gunnarsson : píanó Snorri Sigurðarson : trompet Scott Mclemore : trommur Matthías Hemstock : slagverk