Jazzhátíð Reykjavíkur Austurbæ 29. ágúst
Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort
lau. 29.08.2026 19:00
hist og | Útgáfutónleikar
Laugardagurinn 30. ágúst | Austurbæjarbíó
21:00
Kvöldpassi*
Tríóið hist og var stofnað í lok árs 2017 til þess að rugla saman reitum raf-og djasstónlistar. Tríóið skipa Eiríkur Orri Ólafsson, sem leikur á trompet, trommuheila og hljómboð, Róberta Andersen á gítar, bassa og hljómborð og Magnús Trygvason Eliassen á trommur og slagverk. Tónlistin einkennist af innhverfri, úthverfri og slagþungri blöndu af djass, raf-, og spunatónlist sem kemur víða við.
Hist og mun gefa út sína fjórðu breiðskífu á árinu undir merkjum Reykjavík Recordshop snemma á árinu og mun starfsárið því einkennast af því að kynnaplötuna og er það von meðlima að jazzhátíð Reykjavíkur geti leikið þar lykilhlutverk.
hist og á að baki þrjár plötur, Days of Tundra (2019), hits of (2020), og holy ghost of (2023). Allar hlutu þær mikið lof og hefur hljómsveitin landað þremur tilnefningum til Íslensku Tónlistarverðlaunanna í djassflokki bæði árin, sem og sæti á Kraumslistanum 2019 og "Spuni Ársins" sama ár hjá Morgunblaðinu. Um hits of skrifaði Arnar Eggert Thoroddsen hjá Morgunblaðinu ma. "Hörkustöff … stimpill þessa ofurtríós kirfilega á öllum smíðum." Allar plöturnar hafa hlotið sæti á Kraumslistanum. Breska tímaritið Jazzwise hafði þetta að segja um tónleika þeirra á Jazzhátíð í ágúst 2024:
"they are at once thunderous, producing huge walls of sound, and spacey; while also laying down serious grooves. […] They'd go down a storm at a venue like London's Café OTO – let's hope they visit the UK soon."
Meðlimir hist og hafa starfað um árabil með hinum ýmsustu hljómsveitum, svo sem múm, amiinu og Sin Fang, Sigur Rós, Kiru Kiru, Benna Hemm Hemm og Seabear, ásamt ótal samstarfsverkefna á sviði djasstónlistar með ADHD, Hilmari Jenssyni, Skúla Sverrissyni og Mógil.
Laugardagurinn 29. ágúst
19:00 – Austurbær | Hljóð í ljóði - útgáfutónleikar (IS)
20:00 – Austurbær| LILJA (IS/NO)
21:00 – Austurbær |Jocelyn Mienniel & Charles Vetter (FR)
22:00 - Austurbær | hist og (IS)
Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.
Flytjendur
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.
-
LiljaLILJA, praised as “a little sensation” and “a divinely gifted guitarist,” brings together outstanding musicians to create deeply personal, yet universal music. She has performed in most corners of the world, integrating a wide range of traditions into her expression.
LILJA’s debut album Marble (2020) was met with rave reviews from critics. The 2023 follow-up, Mirage, featuring collaborations with traditional musicians from Sápmi, Brazil, Morocco and Pakistan, was nominated for the Norwegian Grammy Award.
Her third album, Muna, expected in August 2026, is written as a non-dualistic autobiography — a paradoxical story about life. It features artists such as Beady Belle, Anders Røine, Bugge Wesseltoft, Helge Norbakken and Jo Skaansar.
-
hist ogTríó sem blandar saman djass og raf tónlist
-
Reykjavík Jazz Festival25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026
www.reykjavikjazz.is
-
Birgir Steinn TheodórssonKontrabassaleikarinn
-
Þórdís Gerður Jónsdóttir
Hljómsveit
-
Matthías Hemstock
Trommur