Jazz í Djúpinu // Helga Margrét Clarke & Róberta Andersen
Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim 19. nóv 2026 20:30
Jaðarjazz fyrir rödd og rafgítar
Helga Margrét Clarke og Róberta Andersen velja lög úr ólíkum áttum sem eiga það sameiginlegt að vera einhvers staðar á jaðrinum. Rödd og rafgítar mætast í frjálsu samtali þar sem lögin eru tekin aðeins út af sporinu og færð inn í hljóðheim sem verður til í augnablikinu.
Helga Margrét Clarke er söngkona og lagahöfundur með bakgrunn í klassískum píanóleik og rytmískum söng. Í tónlist sinni sækir hún áhrif víða að og hefur sérstaklega unnið á mörkum djass, popps og eigin lagasmíða.
Róberta Andersen er gítarleikari og tónskáld sem hefur um árabil starfað á jaðri íslenskrar djass-, popp- og tilraunatónlistar. Hún hefur meðal annars leikið með múm og er meðlimur í tríóinu Hist og, þar sem djass, spuni og elektrónískir hljóðheimar mætast. Í gítarleik sínum vinnur hún mikið með effecta, áferð og frjálsan spuna.
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.