Íslenskuþjálfun Rauða krossins
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort
mið. 26.08.2026 16:30
Íslenskuþjálfun í samstarfi við Rauða krossinn við Eyjafjörð ætlar að hittast á Amtsbókasafninu alla miðvikudaga og fimmtudaga kl. 16:30 til 18:00.
Sköpum tækifæri fyrir fólk sem er að læra íslensku til að æfa tungumálið.
Öll eru velkomin: byrjendur, þau sem eru lengra komin, eða tala reiprennandi, líka þau sem hafa íslensku sem móðurmál.
Við hjálpum hvoru öðru og höfu, gaman, spilum orðaspil, lesum saman eða spjöllum bara. Vinsamlegast athugið að þetta er ekki tungumálanámskeið.
Nánari upplýsingar veitir Noelia Zapata, á netfanginu noelia@redcross.is
Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.