Íslenskukennsla á vinnustöðum

Íslenskukennsla á vinnustöðum

Í streymi, , Reykjavík Kort

mið 25. nóv 2026 09:00

Bústaðu viðburðinn!

Fjallað verður um möguleika í íslenskukennslu á vinnustöðum landsins. Bara Tala og Liberis fræðslumiðstöð ætla að koma með innlegg inn í umræðuna.

Bara tala – tæki til að skapa námssamfélag á vinnustað

Tungumálið er meira en samskiptatæki – það er lykill að þátttöku, inngildingu og tilfinningunni fyrir því að tilheyra. En hvernig geta vinnustaðir skapað umhverfi þar sem íslenskunám verður eðlilegur hluti af vinnudeginum og starfsfólk fær raunveruleg tækifæri til að nota tungumálið?

Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvernig hægt er að byggja upp námssamfélag á vinnustað þar sem íslenskunám, dagleg samskipti og stuðningur samstarfsfólks fara saman. Með hagnýtum dæmum úr starfi Bara tala verður sýnt hvernig stafræn tækni, starfstengt tungumálanám og virk þátttaka vinnustaðarins geta stuðlað að auknu málöryggi, sterkari liðsheild og aukinni tilfinningu starfsfólks fyrir því að tilheyra – bæði á vinnustaðnum og í íslensku samfélagi.

Joanna Dominiczak, fræðslustjóri hjá BARATALA mun færa erindið.

Íslenskukennsla með starfstengdum orðaforða

Í kynningunni verður starfsemi Liberis Fræðslumiðstöðvar kynnt með sérstakri áherslu á fyrirtækjalausnir og íslenskukennslu á vinnustöðum. Fjallað verður um hvernig námið tekur mið af þörfum starfsfólks, tungumálakunnáttu þess og þeim samskiptum sem það tekst á við í daglegu starfi.

Sérstök áhersla verður lögð á þróun sérsniðins kennsluefnis í samstarfi við vinnustaði og hagnýta kennslu sem tengir íslenskunám við raunverulegar starfsaðstæður. Sýnd verða dæmi um viðfangsefni fyrir starfsfólk skóla, leikskóla og umönnunar, auk þess sem rætt verður um sveigjanlegt námsfyrirkomulag og stuðning vinnuveitenda við þátttöku og málnotkun starfsfólks.

Einnig verður sagt frá samstarfi Liberis við fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög, gæðastarfi miðstöðvarinnar og EQM-gæðavottun. Að lokum verður fjallað um hvernig hefja má samstarf um íslenskunám sem miðar að því að efla samskiptafærni, sjálfstraust og þátttöku starfsfólks á vinnustaðnum

Aneta Magdalena Matuszewska og Beata Líf Czajkowska, eigendur Liberis ehf. munu færa erindið.

Flytjendur