Ísland 2040: Hvað gerðum við rétt? - 15 ára afmæli Festu

Ísland 2040: Hvað gerðum við rétt? - 15 ára afmæli Festu

RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort

mið 30. sep 2026 14:30

Bústaðu viðburðinn!

Festa – miðstöð um sjálfbærni á 15 ára afmæli og því ber að fagna! 🎉 Þann 30. september blásum við til afmælisveislu í Tónabíó þar sem við munum líta yfir farinn veg, ræða áhættur og áskoranir í íslensku samfélagi í dag og horfa til framtíðar, skála, mingla og dansa 🥂

Afmælið verður lifandi og gagnvirkur viðburður þar sem gestir kafa ofan í áhættur til skemmri og lengri tíma, byggðar á Global Risk Index World Economic Forum. Markmiðið er að byrja að kortleggja og forgangsraða þeim þáttum sem hafa mest áhrif á Ísland og eiga samtal um hvernig við getum saman undirbúið okkur fyrir framtíðina.

Eftir hringborðsumræður tekur Saga Garðars við með uppistand og svo verður skálað og afmælinu fagnað á dansgólfinu með DJ Rósu.

Fundarstjórn: Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu og Reynir Smári Atlason, sjálfbærnistjóri CreditInfo.

Þetta er opinn viðburður á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt að skrá sig til að tryggja sér sæti á sjalfbaer.is/vidburdir

📝 Dagskrá:

🔹Panell með núverandi og fyrrum stjórnarformönnum Festu: Anna Björk Bjarnadóttir, Sigurborg Arnarsdóttir, Finnur Sveinsson, Fanney Karlsdóttir, Hrönn Ingólfsdóttir, Tómas N. Möller og Erla Ósk Ásgeirsdóttir. Sara Júlía, formaður ungmennaráðs Festu, stýrir panelumræðum.

🔹Hringborðsumræður um helstu áhættur og áskoranir sem íslenskt samfélag og atvinnulíf standa frammi fyrir, byggðar á Global Risk Index World Economic Forum.

🔹Uppistand með Sögu Garðars.

🔹Afmælispartý með DJ Rósu og léttum veitingum.