Í anda jólanna : Jóladagatal

Í anda jólanna : Jóladagatal

Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort

sun 15. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Stígðu út úr jólastressinu sem fylgir hátíðunum og leyfðu jólaandanum að umlykja þig.
Á sýningunni Í anda jólanna teljum við niður til jóla frá 1. til 24. desember. Til sýnis verða listaverk máluð með vatnslitum á kringlóttan vatnslitapappír og ekkert þeirra er eins.
Upphaflega hófst dagatalið sem tilraun hjá listakonunni Ölmu til að stíga út úr jólaamstrinu og gefa sér tíma til að njóta augnabliksins. Verkefnið er hvatning til að lifa í núinu og hugleiða stað og stund á annasamasta tíma ársins. Óhætt er að segja að Alma hafi náð markmiði sínu þar sem fjölskylda og vinir fylgdust með birtingu listaverkanna daglega á samfélagsmiðlum. Því lauk síðan með heildardagatali sem er nú til sýnis í Borgarbókasafninu Árbæ.
Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir byrjaði að mála hjá Ljósinu þar sem hún var í endurhæfingarmeðferð eftir að hún greindist með krabbamein. Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur þess. Gamall áhugi hennar á listmálun kviknaði þegar Alma sótti fjölmörg námskeið hjá Ljósinu þ.á.m. í myndlist og listmeðferð. Einnig hefur Alma lokið tveimur námskeiðum í vatnslitamálun hjá listmálurunum Guðmundi Ármanni Sigurjónssyni og Ragnari Hólm.
Gleðileg jól!
Sýningin stendur til 10.janúar og er opin á afgreiðslutíma bókasafnsins.
Nánari upplýsingar:
Alma Sigrún Sigurgeirsdóttir, listakona
almasigrun@gmail.com
https://www.facebook.com/almasigrunart
https://www.instagram.com/almasigrunart
Heiðrún Gréta Viktorsdóttir, sérfræðingur á Borgarbókasafni Árbæ
heidrun.greta.viktorsdottir@reykjavík.is