Hvað þarf ég að hafa í huga við val á sjóði?
Kaffi Flóra, Grasagarðurinn Laugardal, 104 Reykjavík Kort
mið 7. okt 2026 17:00
Á þessum viðburði fara þær Kristbjörg M. Kristinsdóttir og Harpa Hjartardóttir hjá Stefni yfir helstu atriðin sem gott er að hafa í huga við val á sjóði. Þær útskýra muninn á algengum sjóðategundum, hvernig áhætta og ávöxtun haldast í hendur og hvernig sjóðir geta verið öflug leið til að byggja upp eignir til framtíðar.
Fyrirlesturinn er um 40 mínútur og að honum loknum gefst tækifæri til að spyrja spurninga.
Við hvetjum vinkonur til að mæta saman, eiga góða kvöldstund með okkur og halda umræðunni áfram að fyrirlestri loknum.
Skráning: https://www.arionbanki.is/einstaklingar/fraedsla-og-radgjoef/konur-fjarfestum/konur-fjarfestum-vidburdir
Fyrirvari: Fyrirlesturinn er ætlaður til almennrar fræðslu og felur ekki í sér persónulegar ráðleggingar eða aðra fjárfestingarráðgjöf.