Hvað kemur næst?

Hvað kemur næst?

Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort

mið 14. okt 2026 16:30

Bústaðu viðburðinn!

Vinnustofa fyrir 13-16 ára, foreldra og forráðafólk
Hvernig veit gervigreind hvað hún á að segja? Veit hún það yfirleitt, eða giskar hún? Og hvers vegna fær maður ekki sama svarið tvisvar?
Í þessari vinnustofu verður salurinn sjálfur að mállíkani. Með límmiðum, töflu og einni skál búum við til texta, orð fyrir orð, eins og gervigreindin gerir, sjáum hvað gerist þegar við skiptum um lesefni og hvað gerist þegar við þurfum að svara spurningu sem enginn í salnum veit svarið við. Í lokin prófum við tilgáturnar okkar á alvöru gervigreind.
Enginn fyrirlestur og engin forkunnátta. Þátttakendur útskýra sjálfir, með eigin orðum, hvernig mállíkön virka, hvers vegna þau skálda, hvers vegna þau segja sjaldan „ég veit ekki“ og hver ákveður það.
Atli Þór Jóhannsson stýrir vinnustofunni.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11. - 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum.
Nánari upplýsingar veitir:
Karl James Pestka, verkefnastjóri | skapandi tækni
karl.james.pestka@reykjavik.is | 411-6105