Hvað er? Fiskar og hafstraumar á Íslandsmiðum
Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
mið 18. nóv 2026 12:15
Bústaðu viðburðinn!,,Hvað er?“ er erindaröð á vegum Náttúrusafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.
Þennan miðvikudag dembum við okkur í hafið og fræðumst um fiska og hvernig hafstraumar móta umhverfi þeirra og lífsferla.
Fiskar á Íslandsmiðum eru fjölbreyttir og eiga sér ólíkar lífssögur, allt frá stofnum sem halda sig við landið allt árið til flökkustofna sem ferðast langar leiðir hingað í ætisleit. Í erindinu verður fjallað um helstu fiskistofna við Ísland, hvar þeir halda sig, hvert þeir ferðast og hvar þeir hrygna. Jafnframt verður skoðað hvernig hlýir og kaldir hafstraumar umhverfis landið móta aðstæður á Íslandsmiðum og hafa áhrif á útbreiðslu og göngur fiskanna.
Lísa Anne Libungan er sjávarlíffræðingur með doktorspróf í fiskifræði frá Háskóla Íslands og hefur víðtæka reynslu af hafrannsóknum, stofnmati fiskistofna og kennslu. Hún starfar sem fiskifræðingur hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og er formaður Hins íslenska náttúrufræðifélags.
Aðgangur er ókeypis.
Öll velkomin.
Viðburðurinn er hluti af Menningu á miðvikudögum og er styrktur af Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.