Hugleiðsla fyrir byrjendur

Live Stream - GMT, , Reykjavík Kort

þri. 25.08.2026 18:00

ISK 44400.00
Miðar / Skráning

Hugleiðsla fyrir byrjendur – byrjaðu ferðalagið að meiri ró og vellíðan

Langar þig að byrja að hugleiða en hefur ekki vitað hvernig eða fundið fyrir óöryggi?

Ég er hér til að hjálpa þér að yfirstíga þá hræðslu eða efasemdir sem þú hefur kannski haft gagnvart hugleiðslu, svo þú getir upplifað þá dásamlegu vellíðan sem regluleg hugleiðsla getur fært – án þess að þurfa að gera róttækar breytingar á lífi þínu.

Þetta námskeið er sérstaklega ætlað byrjendum og þeim sem vilja komast af stað á einfaldan og notalegan hátt.

Við hittumst tvisvar í viku

🧘 Þriðjudagar kl. 18:00 – lifandi hugleiðsla í Zoom þar sem við hugleiðum saman og þú getur spurt spurninga.

✨ Fimmtudagar – ný hugleiðsla birtist í lokuðu samfélagi þar sem þú getur hugleitt þegar þér hentar. Upptakan verður einnig aðgengileg svo þú getir hlustað aftur og aftur.

Á námskeiðinu lærir þú meðal annars að:

🌿 tengjast þér á dýpri hátt

🌿 efla innsæi og innri ró

🌿 draga úr streitu og spennu

🌿 skapa meira jafnvægi í líkama og huga

Þú þarft enga reynslu – aðeins opinn huga og vilja til að gefa þér smá tíma fyrir þig.

Ef þú hefur einhverjar spurningar skaltu endilega hafa samband. Ég svara þeim með ánægju.

Nánari upplýsingar og skráning má finna á ljoshof.is.

12 skipta námskeið: 44.400 kr.

Ég hlakka til að hugleiða með þér. 💛

Kær kveðja Lilja Guðjónsdóttir í Ljóshof