Hr. Eydís og Erna Hrönn
Græni hatturinn, Hafnarstræti 96, 600 Akureyri Kort
lau. 10.10.2026 21:00
Alvöru '80s partý – Movie Hits
Bestu bíómyndalög níunda áratugarins!
Hr. Eydís og Erna Hrönn bjóða nú upp á tónleikapartý þar sem stærstu kvikmyndasmellir '80s fá að njóta sín. Á efnisskránni eru lögin sem hljómuðu í bíómyndunum og urðu meðal vinsælustu laga áratugarins.
Hvort sem þú manst eftir þeim úr bíóinu, af VHS-spólunum eða útvarpinu, þá eru þetta lög sem vekja upp minningar og fá flesta til að öskursyngja með.
Ef þú hefur áður séð Hr. Eydísi og Ernu Hrönn saman veistu við hverju má búast.
Hr. Eydís skipa Örlygur Smári, Erna Hrönn Ólafsdóttir, Páll Sveinsson, Ríkharður Arnar og Jón Örvar Bjarnason.
Tónleikarnir fara fram á Græna hattinum á Akureyri laugardaginn 10. október.
Forsalanhefst sun.9. ágúst kl. 10.00 á grænihatturinn.is
Flytjendur
-
Hr. Eydís
Hr. Eydís er skipuð fjórum miðaldra ‘80s unglingum / Icelandic band celebrating eighties music. (Herra Eydís/Mr. 80s)
-
Erna HrönnHljómsveit sem heldur jólatónleika með ’80s lögum.