Himinn og jörð - Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar

Himinn og jörð - Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar

Hljómahöll | Stapi, Hjallavegur 2, 260 Njarðvík Kort

sun. 06.09.2026 20:00

ISK 7900.00
Miðar / Skráning
ISK 7900.00
Miðar / Skráning

Á sunnudagskvöldi Ljósanætur, 6. september, verða tónleikarnir Himinn og jörð – Dægurlagaperlur Gunnars Þórðarsonar haldnir í Stapa í Hljómahöll.

Gunnar átti sterk tengsl við Reykjanesbæ og var meðal annars útnefndur bæjarlistamaður Keflavíkur árið 1992. Ljósanótt er því kærkomið tækifæri til að heiðra minningu þessa einstaka tónlistarmanns og njóta tónlistar hans.

Það er tónlistarhópurinn Himinn og jörð sem stendur að tónleikunum, sem haldnir eru í samstarfi við Ljósanótt. Hópurinn hefur áður flutt dagskrána við góðar undirtektir í Salnum í Kópavogi og Hofi á Akureyri – en nú er röðin komin að Reykjanesbæ.

Á tónleikunum er farið yfir einstakan feril Gunnars í tali og tónum og fluttar fjölmargar af þekktustu dægurlagaperlum hans, meðal annars Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Gull og Vetrarsól.

Gunnar sjálfur sagði um tónleikana eftir að hafa séð þá í Salnum: „Fórum á þessa tónleika í Salnum Kópavogi og urðum yfir okkur hrifin. Ungt tónlistarfólk flutti lögin mín af hreinni snilld. Þakka ykkur öllum hvað þið fluttu lögin mín af mikilli hlýju og nákvæmni."

Flytjendur