Heilahjálp með fræðslu á Sauðárkrók

Heilahjálp með fræðslu á Sauðárkrók

Sauðárkrókur, Iceland, Aðalgata 4, 550 Sauðárkrókur Kort

þri 6. okt 2026 17:30

Bústaðu viðburðinn!

Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.

Nú er förinni heitið í Skagafjörðinn þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi á Sauðárkrók.

Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.

⏰HVENÆR

Þri. 6. október kl. 17:30

🏠HVAR

Hús Frítímans, Sæmundargötu 7

🗣HVERJIR

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.

👥FYRIR HVERJA

Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.