Heilahjálp með fræðslu á Hvammstanga
Félagsheimilið Hvammstanga, Klapparstíg 4, 530 Hvammstangi Kort
mið 7. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Við höldum reglulega fræðsluerindi víðsvegar um landið, þar sem við kynnum starfsemi samtakanna og veitum fræðslu um heilabilun og samskipti. Eitt af okkar meginmarkmiðum er nefnilega að auka þekkingu og dýpka skilning á þeim áskorunum sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir.
Nú er förinni heitið í Húnaþing vestra þar sem við höldum m.a. opið fræðsluerindi á Hvammstanga.
Þeir sem mæta öðlast betri skilning á breyttum aðstæðum og fá hugmyndir að bættum samskiptum og samveru. Þá er umræða um heilabilun einnig mikilvægur þáttur til að minnka fordóma í samfélaginu.
⏰HVENÆR
Mið. 7. október kl. 17:00
🏠HVAR
Safnaðarheimilið við Hvammstangakirkju
🗣HVERJIR
Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi samtakanna mæta.
👥FYRIR HVERJA
Fyrirlesturinn er opinn öllum, einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öðrum áhugasömum.