Hausttónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur
Harpa | Kaldalón, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
sun 15. nóv 2026 15:00
LR blæs enn á ný til tónlistarveislu og leikur eina af perlum lúðrasveitartónlistarinnar, Fyrstu svítu fyrir lúðrasveit eftir Holst, ásamt tveimur íslenskum mörsum sem hafa legið í dvala um nokkurt skeið, og úrvali annarra verka, þ. á m. kvikmynda- og söngleikjatónlist. Stjórnandi er Hannah O’Connor.
Tónleikarnir eru um klukkustund, án hlés.
Almenn miðaverð er kr. 3000, frítt fyrir 16 ára og yngri!