Haustfrí í Hafnarhúsi | Hvað leynist í skóginum?
Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort
mán 26. okt 2026 10:00
Bústaðu viðburðinn!Við leggjum af stað í skógarferð í gegnum verk Si On á sýningunni Lekir líkamar, sameiginlegir heimar. Hver gægist þarna í gegnum laufþykknið? Á skapandi stund í sýningarsalnum teikna þátttakendur sinn eigin furðuskóg.
Í skapandi smiðjum á Listasafni Reykjavíkur er lögð áhersla á frjálsa sköpun með fjölbreyttan efnivið. Gestir njóta leiðsagnar reyndra smiðjukennara sem aðlagar verkefnin að aldri og áhuga þátttakenda. Þemu smiðjanna eru aðeins hugsuð sem kveikja að skapandi ferli og þátttakendur hvattir til þess að setja sitt mark á eigin listaverk.
Á öllum barna og fjölskylduviðburðum Listasafns Reykjavíkur er gert ráð fyrir því að börn komi ásamt fullorðnum fjölskyldumeðlimum og njóti samverunnar.
Frítt inn á söfn Listasafns Reykjavíkur fyrir fullorðna í fylgd barna allt vetrarfríið og fjölbreytt dagskrá í boði fyrir barnafjölskyldur.