Hátæknibrennsla - Fundur í Norræna húsinu
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
fös 30. okt 2026 10:00
Bústaðu viðburðinn!Undanfarin ár hafa hópar á vegum, umhverfis- orku- og loftslagsráðuneytis, Samtaka Sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SORPU, Sorpeyðingarstöðinni Kölku, Sorpurðun Vesturlands, Sorpstöð Suðurlands, unnið að greiningum og mat á rekstri fyrir hátæknibrennslustöð á Íslandi. Slík stöð myndi brenna óendurvinnanlegum úrgangi til orkuvinnslu. Óendurvinnanlegur úrgangur hefur verið urðaður en með innleiðingu hringrásarhagkerfis og lögum um umhverfismál hefur aukin áhersla verið á útflutning til brennslu og orkuvinnslu. Á fundinum verður kynnt vinna hópsins og næstu skref.
Gert er ráð fyrir að á árinu 2035 muni falla til á Íslandi allt 140.000 tonn af óendurvinnanlegum úrgangi sem hátæknibrennsla þyrfti að geta afkastað. Slík brennsla gæti framleitt 4,0 milljónir rúmmetra af heitu vatni og 97 milljónum kWst. af rafmagni á ári. Miklar framfarir hafa átt sér stað við byggingu slíkra hátæknibrennslna og má víða um Evrópu sjá þær reistar nálægt íbúðabyggð. (Amagarbakken í Kaupmannahöfn og Spittelau í Vín). Í Evrópu voru árið 2020 um 504 hátæknibrennslur sem samtals meðahöndluðu 101 milljónir tonna af óendurvinnanlegum úrgangi. Á Íslandi yrði horft yrði til bestu fáanlegu tækni við brennslu og hreinsibúnaði á útblæstri. Ekki yrði tekið á móti spilliefnum í slíka brennslu.