Hallgrímskirkja með augum arkitekts: Vinnustofa fyrir börn með Ölmu Sigurðardóttur

Hallgrímskirkja með augum arkitekts: Vinnustofa fyrir börn með Ölmu Sigurðardóttur

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

sun 18. okt 2026 12:15

Bústaðu viðburðinn!

Vinnustofa fyrir börn: Hallgrímskirkja með augum arkitekts

Sunnudagur 18. október eftir fjölskylduguðsþjónustu kl. ca. 12:15.

Alma Sigurðardóttir sérfræðingur í varðveislu bygginga og höfundur barnabókarinnar Byggingarnar okkar, leiðir smiðjuna Hallgrímskirkja - með augum arkitekts þann 18. október kl. 12.

Í smiðjunni verður Hallgrímskirkja skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skyggnst inn í sögu hennar, frá hugmynd að veruleika. Hvernig verður svona stór og sérstök bygging til? Á hvað minna þessi sérstöku form sem einkenna útlit kirkjunnar? Hvað sér arkitektinn sem við tökum kannski ekki eftir?

Að lokinni skoðunarferð fá þátttakendur að setja sig í spor arkitekts og hanna sína eigin byggingu.

Ókeypis aðgangur er á alla viðburði tengda 40 ára Vígsluhátíð í Hallgrímskirkju í október 2026

HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA