Hagnýting gervigreindar í rekstri
mið 7. okt 2026 17:00
Reykjavík Fintech boðar til fyrsta fundar gervigreindarhóps Reykjavík Fintech miðvikudaginn 7. október kl. 17:00 í Fantasíu, viðburðasal Vinnustofu Kjarvals. Húsið opnar kl. 16:45 og eru gestir hvattir til að mæta tímanlega. Gengið er inn hægra megin við aðalinngang Kjarvals í Austurstræti.
Um er að ræða opinn viðburð og allir velkomnir, en skráning nauðsynleg. Hægt er að skrá sig hér:
https://www.reykjavikfintech.is/event-info/hagnyting-gervigreindar-i-rekstri
Á fundinum verður sjónum beint að hagnýtingu gervigreindar í rekstri, þeim tækifærum sem tæknin skapar og þeim áskorunum sem fyrirtæki standa frammi fyrir við innleiðingu hennar.
Viðburðurinn höfðar því til allra sem hafa áhuga á því hvernig best megi hagnýta gervigreind í rekstri.
Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent með doktorspróf á sviði gervigreindar og sjálfvirknivæðingar ferla í viðskiptum, er formaður gervigreindarhóps Reykjavík Fintech og mun stýra viðburðinum.
Anna Garðarsdóttir gervigreindarráðgjafi, Jón Atli Tómasson, deildarstjóri hjá Íslandsbanka, og Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og meðeigandi LOGOS, verða með erindi á fundinum.
Dagskrá:
16:45 — Húsið opnar, kaffi og tengslamyndun
17:00 — Dr. Ásgeir Theodór Jóhannesson, framkvæmdastjóri Reykjavík Fintech: Býður gesti velkomna og kynnir hópastarf Reykjavík Fintech
17:05 — Dr. Hanna Kristín Skaftadóttir, dósent og formaður gervigreindarhópsins: Kynning á gervigreindarhópnum og innlegg um netöryggi og skammtatölvur
17:20 — Anna Garðarsdóttir, sjálfstætt starfandi gervigreindarráðgjafi:
Stefnumótun um gervigreind í óvissu
17:35 — Jón Atli Tómasson, deildarstjóri hjá Íslandsbanka:
Gervigreind og sjálfvirkni í Íslandsbanka
17:50 — Áslaug Björgvinsdóttir, lögmaður og meðeigandi LOGOS: Notkun gervigreindartóla; mat á lagalegum áhættum
18:05 — Stutt hlé
18:10 — Hringborð: áskoranir og tækifæri
18:40 — Næstu skref, dagsetningar vetrarins og könnun
18:50 — Léttar veitingar og spjall
Léttar veitingar verða í boði á meðan birgðir endast og hægt verður að kaupa hressingu.