Guðrið Hansdóttir - Útgáfutónleikar Sýrublað
Midgard Base Camp, Dufþaksbraut 14, 860 Hvolsvöllur Kort
mið 28. okt 2026 20:00
Hin ástsæla færeyska tónlistarkona Guðrið Hansdóttir snýr aftur til Íslands með glænýja og ferska tónlist í farteskinu! Hún fagnar útgáfu sjöundu hljóðversplötu sinnar, Sýrublað, með tónleikum í Midgard Base Camp 28. október.
Um tónlistina segir Guðrið sjálf:
„Tónlistin er eins og að bíta í túnútublað (súru) – fersk, stökk, græn og örlítið súr.“
Platan er pródúseruð af Høgni Lisberg og einkennist af grípandi og draumkenndum indí-pop hljómi sem Guðrið er þekkt fyrir. Hún hefur verið áberandi í færeysku og norrænu tónlistarlífi frá aldamótum, bæði sem sólólistamaður og í rafpopp-dúettinum BYRTA. Fyrri plata hennar, Gult myrkur, var valin plata ársins á Færeysku tónlistarverðlaununum (FMA).
Guðrið verður ekki ein á sviðinu, heldur fær hún til liðs við sig tvo magnaða meðspilara. Ekki missa af tækifærinu til að upplifa einn af skærustu tónlistarmönnum Færeyja í lifandi og nánu umhverfi í Midgard Base Camp.
Tryggðu þér miða strax: https://stubb.is/events/y64lMb