Grýbos útgáfutónleikar Kemur í Ljós
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
fim. 24.09.2026 20:00
Platan Kemur í Ljós er frumraun hljómsveitarinnar Grýbos og verður einungis gefin út á CD þangað til annað kemur í ljós. Plötuna verður hægt að nálgast á tónleikunum. Hljómsveitin kemur fram með strengjakvartett með sér í liðsauka.
Grýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst sem tilraunir í upptökuveri þar sem var prófað allt frá A til Ö, það þróaðist fljótt í hljómsveit með kraftmiklum hljóðheim. Með þeim í lið slógust Hlynur Sævarsson á bassa, Magnús Már Newman á trommur og Guðjón Steinn á hin ýmsu hljóðfæri
Tónlistin einkennist af stórum og kraftmiklum köflum sem flæða áreynslulaust yfir í mildari ‘’atmó’’ kafla.
Flytjendur
-
GrýbosGrýbos er tónlistarverkefni bræðranna Alexanders og Jakobs Grybos. Verkefnið hófst sem tilraunir í upptökuveri þar sem var prófað allt frá A til Ö, það þróaðist fljótt í hljómsveit með kraftmiklum hljóðheim. Með þeim í lið slógust Hlynur Sævarsson á bassa og Magnús Már Newman á trommur.
Tónlistin einkennist af stórum og kraftmiklum köflum sem flæða áreynslulaust yfir í mildari ‘’atmó’’ kafla.