Grunnnámskeið í leirmótun
Edinborgarhúsið, Aðalstræti 7, 400 Ísafjörður Kort
lau 10. okt 2026 10:30
Bústaðu viðburðinn!Menningarmiðstöðin Edinborg og Listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar, bjóða upp á grunnnámskeið í leirmótun fyrir fullorðna.
Kennari er Ólöf Oddsdóttir, leirkerasmiður.
Fyrstu þrjár kennslustundirnar fara fram dagana 10.-12. október. Dagsetning fjórðu kennslustundarinnar, sem felur í sér glerjun, verður ákveðin í samráði við þátttakendur.
Laugardagur 10. október kl. 10:30-13:00
Sunnudagur 11. október kl. 10:30-13:00
Mánudagur 12. október kl. 17:00-19:30
Glerjun, dagsetning ákveðin í samráði við þátttakendur.
Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið:
https://forms.gle/9r7kPWe2AiGaHNqS6
Námskeiðsgjald er 45.000 kr. og er greitt með millifærslu á Menningarmiðstöðina Edinborg:
0154-26-002779
Kennsla fer fram í myndlistarsal á annarri hæð í Edinborgarhúsinu.