Gjörningakvöld og opnunarpartý

Gjörningakvöld og opnunarpartý

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

fös. 28.08.2026 20:00

28. Ágúst kl.20:00 | Gerðarsafn | Gjörningakvöld | Opnunarpartý

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin í opnunarpartý Hamraborg Festival og gjörningakvöld í Gerðarsafni!

Formleg opnun hátíðarinnar mun eiga sér stað fyrr sama dag, 28. ágúst, kl. 18:00 með tónleikum í Salnum, opnun allra listasýninga og Gjörningum í bókasafninu og á ferðaskrifstofunni Visitor.

Gjörningakvöldið hest kl 20:00.

Hamraborg Festival býður ykkur á ný á gjörningakvöld í Gerðarsafni þar sem Innlent og erlent listafólk mun taka yfir rými Gerðarsafns og nú einnig bílastæðahúsið undir Molanum.

Eistneska danstvíeykið Juliuus Vaiksoo og Helena Tõrva leiða okkur inn í undurfagran líkamlegan glundroða. Michael Richardt ásamt Agli Ásdísarsyni leyfa tónum að flæða og enduróma um sýningarrýmin í Sæborgískum hljómflutingi. Silfrún Una fær bíla til að dansa og tala á meðan saumavélar og hárkambar stíga inn í hljóðgjörning Lindy Lin þar sem gestum býðst að fylgja hljóðinu hvert sem það leiðir.

Líkamar, vélar, draumar, hreyfing og dass af ljómandi ringulreið.

Í kjölfarið munu DJ ÓK þeyta skífum og Krónikan verður opin fram eftir kvöldi! Öll velkomin í partý!!!

***ATH: fyrsti gjörningurinn mun eiga sér stað utandyra, í bílastæðahúsinu undir Molanum (á móti Gerðarsafni)!

Hamraborg Festival er árlegur, vikulangur fögnuður lista og samfélags í hjarta Kópavogs. Þetta árið er hátíðin haldin í sjötta sinn og stendur hún yfir dagana 28. ágúst - 4. september en þá kveðjum við sumarið með líflegri dagskrá sem er yfirfull af listarsýningum, gjörningum, vinnusmiðjum, tónleikum og öðrum listviðburðum. Allir viðburðir hátíðarinnar eru ókeypis og öllum opnir. Hátíðin er sköpuð í nánu samstarfi við nærsamfélagið og mörg verkanna eru í samtali við arkítektúr, sögu eða daglegt líf á svæðinu.

Nælið ykkur í útprentað kort af hátíðarsvæðinu eða nágist dagskránna í heild sinni á heimasíðu hátíðarinnar.

hamraborgfestival.is

Sjáumst í Hamraborg!

Hamraborg Festival er góðfúslega styrkt af: Kópavogsbæ, Myndlistarsjóði, Landsbankanum, Barnamenningarsjóði.

_______________________________

Performance Night | Opening Party | August 28 at 20.00 | Gerðarsafn

Join us for the opening party of the festival and a series of performances at Gerðarsafn!

Official opening of the festival will take place earlier the same day, August 28th, at 6 PM with a concert at Salurinn, opening of all exhibitions and performances at Kópavogur Library as well as the Visitor travel agency office.

Performance Night at Gerðarsafn starts at 8 PM.

Hamraborg Festival hosts another series of performances at Gerðarsafn, where local and international artists will take over the museum's space and the underground parking lot by Molinn.

Estonian dance duo Juliuus Vaiksoo and Helena Tõrva are bringing a beautiful chaos of bodies. Michael Richardt, in collaboration with Egill Ásdísarson, will let sound spill and reverberate through the exhibition rooms in a cyborg-infused sonic performance. Silfrún Una will make cars dance and talk, while sewing machines and hair combs join Lindy Lin’s sound performance, inviting us to follow the sound wherever it takes us.

Bodies, machines, noise, dreams, movement, and a little bit of glorious chaos.

Join us for an opening party afterwards! DJ set by DJ ÓK and Krónikan open until late! All are welcome!

***Please note: the first performance will start outside, at the car park under Molinn (across from Gerðarsafn)!

Hamraborg Festival is an annual, vibrant, week-long celebration of art and community in the heart of Kópavogur. This year's festival is the 6th edition, and will run from August 28th to September 4th, marking the end of summer with a program of exhibitions, performances, workshops, concerts and public events – open to everyone, free of charge. The festival is built in close collaboration with the local community, with many works responding to the architecture, history, and everyday life of the Hamraborg area.

Follow the detailed program on our website and pick up a printed map.

hamraborgfestival.is

See you in Hamraborg!

Hamraborg Festival is kindly supported by: Kópavogsbær, Myndlistarsjóður, Landsbankinn, Barnamenningarsjóður.

Flytjendur

  • Hamraborg Festival
    Hamraborg Festival

    Hamraborg Festival er lifandi listahátíð í hjarta Kópavogs.

    Hátíðin er haldin ár hvert í lok ágúst og markar þar með enda sumarsins með vikulöngum fögnuði listar og samfélagsins í Hamraborg.

  • DJ ÓK
    DJ ÓK

    A DJ known for creating a relaxing and vibey atmosphere.