Gagnvirk sögustund fyrir börn á leikskólaaldri
Getur píanó virkilega hrapað af himnum ofan? Og er allt satt sem við sjáum og heyrum?
Í þessari gagnvirku sögustund veltum við fyrir okkur sögusögnum og því hvernig við getum greint á milli staðreynda og skáldskapar. Sögustundin byggir á æfingunni „Ég hef heyrt að píanó geti hrapað af himnum ofan“, sem þróuð var fyrir upplýsingavefinn Lajka í Svíþjóð.
Í sögustundinni skoðum við gervigreind og hvernig tæknin getur búið til texta, myndir og upplýsingar. Börnin fá tækifæri til að velta fyrir sér hvort hægt sé að treysta öllu sem þau sjá og heyra og læra að spyrja spurninga, skoða upplýsingar nánar og hugsa á gagnrýninn hátt.
Markmið sögustundarinnar er að efla upplýsinga-log miðlalæsi barna á þeirra eigin forsendum og vekja forvitni um hvernig við metum upplýsingar.
Þórunn Vignisdóttir stýrir sögustundinni en hún hefur starfað um árabil á almenningsbókasöfnum bæði í Reykjavík og Stokkhólmi. Hún hefur sérhæft sig í stafrænu læsi, miðlalæsi og skapandi notkun tækninnar með börnum og ungmennum.
Viðburðurinn er hluti af viðburðaröðinni Mjúkt net – samfélagslegt miðlalæsi sem hlaut styrk úr Bókasafnasjóði. Borgarbókasafnið býður upp á fjölbreytta dagskrá fyrir börn og fjölskyldur dagana 11. - 18. október sem upptakt að miðlalæsisviku í öllum átta söfnunum.
Nánari upplýsingar veitir:
Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir
verkefnastjóri barna- og unglingastarfs – lestrarhvatning og fræðsla
ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is | 411 6146
Getur það verið?
Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort
fös 16. okt 2026 16:30