Fúsballmót FÍT & Fúsa 2026

Fúsballmót FÍT & Fúsa 2026

Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort

fim 1. okt 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Fimmtudaginn 1. október heldur Félag íslenskra teiknara (FÍT) og fúsballfélagið Fúsi (stofnað af nemendum við Listaháskóla Íslands) árlegt fúsballmót í þriðja sinn. Í þetta sinn verður mótið haldið í Bíó Paradís, Hverfisgötu 54, 101 Reykjavík. Viðburðurinn fer fram beint í kjölfar AGI Open sem fram fer í Gamla bíó og lýkur klukkan 17:00. Mót hefst kl. 20:00 en hús opið fyrr.

FÍT og Fúsi bjóða allt félagsfólk velkomið! Nauðsynlegt er að skrá sig og eru 2 saman í liði. Veitt verða gull-, silfur- og bronsverðlaun eins og áður. Í ár verða einnig veitt sérstök verðlaun fyrir bestu liðsbúningana. Gestum er velkomið að koma og fylgjast með mótinu.

Skráning: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSeTjM27UnUlvSHN1bBBFlkT6HbSgkvyvJ-_9bMPe_255zfzNQ/viewform?usp=header

Fúsball hefur lengi verið heilög tómstund nemenda Listaháskóla Íslands og má rekja söguna aftur til ársins 2003. Fúsballfélagið Fúsi var stofnað af nemendum í grafískri hönnun við Listaháskólann árið 2022. Heimsmeistaramót grafískra hönnuða í fúsball (World Graphic Design Foosball Championship) var fyrst haldið árið 2004 í New York af hönnunarstofunni karlssonwilker inc. sem er rekin af Hjalta Karlssyni og Jan Wilker.

FÍT og Fúsi vilja styðja við og upphefja þessa ríku hefð sem hefur í gegnum árin verið góð afþreying og hluti af félagslífi grafískra hönnuða. Eða eins og segir í stefnuskrá Fúsa: „Fúsballborðið er vettvangur fyrir hönnuði til að koma saman og deila hugmyndum, visku og tilfinningum.“

Útlit: @grafiskur