Fuglaskoðun
Hólavallagarður, Ljósvallagata 1A, 101 Reykjavík Kort
lau 10. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Anna Pratichi Gísladóttir er fimmta árs líffræðinemi við Háskóla Íslands og mun leiða 1-2 klt. fuglaskoðun um Hólavallakirkjugarð við Suðurgötu í Reykjavík.
Fjallað verður um fugla, vetrarfóðrun smáfugla, tré og runna sem fuglar nýta sér. Allir fuglavinir eru velkomnir og engrar skráningar er þörf.
Enginn aðgangseyrir - bara mæta tímanlega.
Mannskapurinn mun hittast við starfsmannahús í garðinum við Ljósvallagötu gott að mæta tímanlega.
Fuglavernd mælir með að fólk mæti í hlýjum fötum, sem eru aðeins of heit fyrir göngu en fín í létta göngu og stöður við fugla- og plöntuskoðun. Gott að hafa með sér aukaflíkur í bakpoka/ tösku. Einnig er gott að hafa með sér lítinn sjónauka sem nýtist í fuglaskoðun í trjám og milli trjáa og leiða.