Frístundabúnaður barna | Skiptimarkaður í september

Frístundabúnaður barna | Skiptimarkaður í september

Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort

mán. 14.09.2026 12:00

Við á Amtsbókasafninu ætlum að halda áfram með mánaðarlega skiptimarkaði í vetur. Septembermarkaðurinn verður vikuna 14. - 19. september 2026

Við minnum á að ekki þarf að koma með eitthvað til að taka annað og öfugt, það má koma með eitthvað án þess að taka eitthvað.

Í tilefni byrjun nýs skólaárs verður hann helgaður frístundum og íþróttum barna. Við óskum eftir hverskonar fatnaði eða búnaði sem börn nota í frístundar- og íþróttastarf. Þegar skiptimarkaði lýkur förum við með restina í Rauða krossinn.

Dæmi um hluti sem hægt er að koma með:

-Sundgleraugu

-Fimleikaföt

-Fatnaður eða annað merkt félögunum

-Fótboltaskór

-Innanhússkór

-Stuttbuxur

-Sundföt

-Skautar

-Ullarföt undir skíðaföt

-Skíðastafir

-Dansfatnaður

-o.s.frv.