Felix Bergsson í Gömlubúð 🥳

Felix Bergsson í Gömlubúð 🥳

Heppuvegur 1, 780 Höfn, Iceland, Heppuvegur 5, 780 Höfn í Hornafjörður Kort

sun 15. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

📣Felix Bergsson skemmtir krökkunum í Gömlubúð á Höfn ❗❗

Leikarinn, söngvarinn, fjölmiðlamaðurinn og rithöfundurinn Felix Bergsson heimsækir Höfn sunnudaginn 15. nóvember og treður upp í Gömlubúð á sérstökum viðburði fyrir börn og fjölskyldur kl. 17.00.

Felix les úr nýrri barnabók um Ævintýri Freyju og Frikka. Sagan heitir Leynifélag í lífsháska og er æsispennandi ævintýri með húmor og samfélagslegri skírskotun. Mjög er vandað til útgáfunnar og bókina prýða frábærar myndir eftir Kára Gunnarsson. Felix les úr sögunni og sýnir krökkunum myndir úr henni á skjá. Svo svarar hann spurningum og tekur lagið. Í lokin getur hann svo áritað bækur fyrir þá sem vilja.

Ævintýri Freyju og Frikka fjalla um skemmtilega 11-12 ára tvíbura sem ferðast með foreldrum sínum á óvenjulega staði og lenda jafnan í háskalegum ævintýrum. Í þessari nýju sögu, Leynifélag í lífsháska, kynnumst við vinum tvíburanna en þau eru í leynifélagi sem þau kalla Púkablístruna. Hópurinn þarf að leysa mjög dularfullt mál en skuggavera hótar eldi og brennisteini ef ekki verður gengið að kröfum hennar um að aflýsa Gleðigöngunni. Það flækir allt að tvíburarnir fara í sitt hvora áttina og gerist bókin bæði í Reykjavík og Alsír. Uppgjörið er æsispennandi og kemur lesandanum í opna skjöldu.

Bækurnar eru ætlaðar krökkum sem elska spennandi ævintýri og eru tilvaldar til lesturs fyrir þau sem eru farin að geta lesið sjálf. Mörg þeirra hafa “lesið” fyrri bækur í bókaflokknum á Storytel en í fyrra kom sú fyrsta, Drottningin af Galapagos, út í bók og varð mjög vinsæl. Leynifélag í lífsháska er hinsvegar splunkuný saga og kemur fyrst út á bók áður en hún ratar inn á Storytel.

Sunnudagurinn verður svo sannarlega bókmenntadagur fyrir alla fjölskylduna því eftir að yngri deildin hefur skemmt sér með Felix í Gömlubúð getur eldri deildin skellt sér á Rithöfundakvöld Menningarmiðstöðvarinnar í Nýheimum kl.20.

Sjá nánar hér: https://fb.me/e/h5yG18snm

Sjáumst á sunnudaginn 🤓🤓🤓