Svavar Knútur í Tónspili, Neskaupstað
Tónspil, Hafnarbraut 22, 740 Neskaupstaður Kort
mið. 15.07.2026 22:00
Svavar Knútur með tónleika í Tónspili, Neskaupstað
Söngvaskáldið Svavar Knútur bregður undir sig betri fætinum í sumar og heldur tónleika vítt og breitt um landið. Meðal annars ætlar hann að koma við í Tónspili á Neskaupstað, þar sem hann mun syngja bæði frumsamið efni og ýmis eftirlætislög, segja sögur og vera bara almennt hvers manns hugljúfi.
Tónleikar hefjast kl. 20.00.
Miðar verða í boði við dyrnar og forsala á Stubb.is
Miðaverð er litlar kr. 3.500 í forsölu og 4.000 í hurðinni.
Flytjendur
-
Svavar KnuturIcelandic singer/songwriter/storyteller and Fjord folker.
I make broccoli music.