Navaranaaq & Ólafs ríma Grænlendings - Sígildir sunnudagar
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
sun. 01.11.2026 16:00
Grænland er landfræðilega næsti nágranni Íslands. Þrátt fyrir nálægðina hafa menningarleg samskipti milli Íslendinga og Grænlendinga ekki verið mikil. Ástæður þess eru ýmsar og má nefna tungumál, ólíkar hefðir og menningu. Bókmenntaleg tengsl milli þjóðanna tveggja hafa ennfremur verið lítil. Það er bæði brýnt og verðmætt að styrkja tengsl þessara nágrannaþjóða með menningarlegu samstarfi, sérstaklega í ljósi viðleitni Grænlands til að tryggja stöðu sína í samfélagi þjóðanna. Að dýpka þessi tengsl er markmið þessa verkefnis, sem leiðir saman tónskáld, skáld, þjóðlagatónlistarmenn, kóra, kórstjóra og þýðendur frá Grænlandi, Íslandi, Noregi og Danmörku.
Verkefnisstjórarnir Stefan Sand (Danmörk/Ísland), Nuka Alice (Grænland) og Rebekka Ingibjartsdóttir (Ísland/Noregur) tengja saman tvær þjóðsögur: norrænu söguna um Ólavík, eins og Einar Benediktsson túlkaði hana í Ólafs rímu Grænlendings og þjóðsöguna um Navaranaaq.
Nuka Alice - Tónskáld og trommudansari
Stefan Sand - Tónskáld og stjórnandi
Rebekka Ingibjartsdóttir - Stjórnandi
Hugo Herrman - Stjórnandi
- - -
Mótettukórinn
Laffí Vokalensemble
Stúlknakór Reykjavíkur
Studenterorkesteret STRYK
Áætluð lengd: 70 mínútur, án hlés.
Flytjendur
-
LAFFÍ vokalensembleLAFFÍ vokalensemble is an Oslo based vocal ensemble with Icelandic roots that was formed in 2015. -
Stúlknakór Reykjavíkur
Girls' choir from Reykjavik.
-
MÓTETTUKÓRINN
Kór sem flytur sígildar jólaperlur og nýrri verk.
-
Stefan Sand
Stjórnandi Hljómeykis, tónskáld og kórstjóri.
-
Rebekka IngibjartsdottirUtdannet kordirigent og sanger. Dirigerer, synger sopran og spiller fiolin i Oslo og omegn.