Eldklárar og eftirsóttar
Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort
fös. 16.10.2026 20:00
Eldklárar og eftirsóttar bjóða uppá grín-hlaðborð í Tjarnarbíó. Tveir fyrir einn: spuni og uppistand. Hópurinn hefur margoft sýnt spuna saman fyrir fullu húsi og nú róa þær á önnur mið með því að blanda uppistandi í dagskránna. Sex fyndnar konur stíga á svið saman og í sundur.
Ebba er klikkuð og kærleiksrík. Gríma er heillandi og harmónísk. Rebekka er lostafull og lausnamiðuð. Gunnlöð er meðvirk og metnaðarfull. Heiða er taumlaus og töfrandi.Laufey er stundvís og seiðmögnuð. Saman eru þær Eldklárar og eftirsóttar.