Jazz í Djúpinu // Sigrún Erla & Tómas R: Koss

Jazz í Djúpinu // Sigrún Erla & Tómas R: Koss

Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim. 20.08.2026 20:30

ÍSLENSKA

Platan Koss eftir Tómas R. Einarsson og Ólafíu Hrönn hefur lengi verið í uppáhaldi hjá söngkonunni Sigrúnu Erlu.

Á þessum tónleikum flytur Sigrún plötuna í heild sinni með aðstoð frábærra hljóðfæraleikara, þar á meðal Tómasi, öðrum höfundi plötunnar.

Koss sameinar djass, ljóðræna texta og leikræna túlkun og mega gestir búast við skemmtilegri kvöldstund þar sem þessi einstaka plata fær nýtt líf í flutningi Sigrúnar Erlu og hljómsveitar hennar.

Hljómsveitina skipa:

Sigrún Erla Grétarsdóttir - söngur

Tómas R. Einarsson - kontrabassi

Vignir Þór Stefánsson - píanó

Matthías Hemstock - trommur

- -

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.

Flytjendur