Kvöldganga I Klaustur í Viðey í 800 ár
Viðeyjarferjan, Skarfagarðar 3 (Skarfabakka í Sundahöfn), 101 Reykjavík Kort
fim. 20.08.2026 20:00
Verð velkomin í Viðey í kvöldgöngu fimmtudagskvöldið 20. ágúst kl. 20.00. Þá mun Margrét Hallgrímsdóttir leiða gesti í allan sannleika um fyrstu fornleifarannsókn á minjum miðaldaklausturs á Íslandi en hún stýrði einmitt fornleifarannsókn í Viðey á árunum 1987-1995.
Í ár eru 800 ár síðan klaustrið í Viðey hóf starfsemi sína árið 1226. Klaustrið var stofnað af höfðingjum þjóðveldisaldar þeim Þorvaldi Gissurarsyni, höfðingja Haukdæla, og Snorra Sturlusyni, höfðingja Sturlunga og lögsögumaður. Klaustrinu var valinn staður í Viðey sem er á landamörkum ættarvelda þeirra Þorvalds og Snorra. Heimildir vitna um umfangsmikinn veraldlegan rekstur sem lagði grunn að rúmlega þriggja alda starfsemi en klaustrið var aflagt árið 1539.
Margrét vinnur nú að bók um sögu Viðeyjar og niðurstöður rannsóknanna í Viðey sem gefin verður út í samstarfi við Hið íslenska bókmenntafélag í því skyni að miðla niðurstöðum rannsóknarinnar til almennings. Rannsóknin hefur leitt í ljós einstakar heimildir, þar á meðal lífrænar leifar, sem varpa sjaldgæfu ljósi á starfsemi klaustra á Íslandi og í norðanverðri Evrópu. Sambærilegt heimildasafn er vart þekkt, hvorki hérlendis né á Norðurlöndum.
Eftir að fornleifarannsókninni lauk gegndi Margrét síðar starfi borgarminjavarðar í Reykjavík og embætti þjóðminjavarðar og hefur átt ríkan þátt í uppbyggingu og miðlun menningararfs hér á landi. Rannsóknin í Viðey sem Margrét leiddi markaði tímamót í íslenskum fornleifafræðum og er enn heildstæðasta rannsókn sem gerð hefur verið á minjum klausturs sem stofnað var á þjóðveldisöld og starfaði samfellt fram að siðaskiptum.
Siglt verður frá Skarfabakka í Viðey kl. 20:00 og til baka ekki seinna en kl. 23:00.
Ókeypis er á viðburðinn, en greiða þarf í ferjuna. Við mælum með að kaupa miða fyrir fram í ferjuna. https://elding.is/is/node/2373
Verið öll velkomin!
//
Flytjendur
-
Borgarsögusafn Reykjavíkur / Reykjavík City Museum
Eitt safn á fimm frábærum stöðum. Borgarsögusafn heyrir undir Reykjavíkurborg.
-
Elding Whale Watching Reykjavik
Elding is a family company est. in 2000 and the original whale watching tour operator from Reykjavík!
-
Kvöldgöngur
Sumarkvöldgöngurnar 2025 hefjast 19. júní.
-
Margrét Hallgrímsdóttir
Archaeologist and former national museum curator