Undir sömu stjörnu
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
sun. 18.10.2026 16:00
Opnunarviðburður Óperunnar í Hofi.
Sama ár og þjóðskáldið Jónas Hallgrímsson orti ljóð sitt um "Ástarstjörnu yfir Hraundranga" samdi Richard Wagner óperuaríu til “Kvöldstjörnunnar" sunnar í Evrópu. Var það mögulega sama tindrandi himinstjarnan sem kveikti hugmyndir beggja?
Í þessari aðgengilegu og upplyftandi söngdagskrá er saga Óperunnar rakin, frá
endurreisn til okkar daga, allt frá hirðsölum Ítalíu að Íslands ströndum.
Einvala lið listamanna fléttar saman fróðleik
og skemmtun og flytur okkur nokkrar fegurstu perlur óperusögunnar.
Fram koma Kristín
Einarsdóttir Mäntylä, sópran, Hildigunnur Einarsdóttir, messó-sópran, Gunnar
Björn Jónsson, tenór, Kristján Ingi Jóhannesson, barítón, Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands, og stórleikararnir
Örn Árnason og Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Handrit og leikstjórn er í höndum Ólafs
Egils Egilssonar og tónlistarstjóri Óperunnar, Richard Schwennicke, stjórnar
hljómsveit.
Opnunarviðburðurinn
verður
18. október í Hofi í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Viðburðurinn
verður einnig fluttur á Eskifirði, í Skálholti, í Reykjanesbæ og síðar í
Þjóðleikhúsinu.
Flytjendur
-
SinfoniaNordIcelandic symphony orchestra
-
Kór AkureyrarkirkjuKór Akureyrarkirkju syngur undir stjórn Sigrúnar Mögnu Þórsteinsdóttur.
-
Kammerkór NorðurlandsKammerkór Norðurlands er sjálfstætt starfandi atvinnukór sem er skipaður söng- og tónlistarmenntuðu fólki af Norðurlandi. Stjórnandi kórsins er Guðmundur Óli Gunnarsson.
-
Richard Schwennicke
Fjölhæfur tónlistarmaður
-
Ólafur Egill Egilsson
Höfundur og leikstjóri
-
Kristín Einarsdóttir Mäntylä
Sópransöngkona
-
Hildigunnur EinarsdóttirEinsöngvari
-
Gunnar Björn Jónsson
Sérstakur gestur kórsins, tenór.
-
Örn Árnason
Fjölhæfur leikari og söngvari, þekktur fyrir leikræna túlkun.
-
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
Leikarinna í sýningunni Ormstunga.