Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur
Árbæjarsafn, Kistuhylur 4, 110 Reykjavík Kort
sun. 30.08.2026 14:00
Stórmót Árbæjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 30. ágúst. Mótið gefur einstakt tækifæri til að takast á við skákgyðjuna í sögulegu umhverfi Árbæjarsafns.
Teflt verður í Árbæjarsafni og hefst taflið kl.14. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik (4+2). Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, 15.000 kr., 10.000 kr. og 5.000 kr. Mótið verður reiknað til alþjóðlegra hraðskákstiga.
Þátttökugjald er greitt með því að greiða aðgangseyri inn á safnið. Frítt er fyrir handhafa Menningarkortshafa Reykjavíkurborgar, öryrkja og börn 17 ára og yngri. Þátttökugjaldið er greitt við inngang safnsins.
Teflt er í Kornhúsinu, en hér má sjá upplýsingar um keppnisstað: https://app.arbaejarsafn.is/hus/feea75ad-ad81-461e-b9d2-76ca5ec47672
Núverandi Árbæjarsafnsmeistari er Róbert Lagerman.
Mótið er eitt af fjölmörgum sem T.R heldur í samstarfi við Reykjavíkurborg, en Viðeyjarmótið og Árbæjarsafnsmótið eru haldin í samstarfi við Borgarsögusafn Reykjavíkur.
Óskað er eftir því að keppendur skrái sig í gegnum hefðbundið skráningarform hér:
https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSflLjQLzH6VMwM5vvPZ3T9wabQriumSnxtpR1guyF-8_qzFZA/viewform
Öll velkomin!

Flytjendur
-
Taflfélag ReykjavíkurChess Club