Diva - Svartir Sunnudagar
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
sun 17. jan 2027 21:00
Ópera, morð og upptaka sem allir vilja komast yfir!
Ungur sendill tekur í laumi upp tónleika óperudívunnar sem hann dýrkar - og áður en langt um líður er hann flæktur inn í atburðarás sem hann ræður ekkert við.
Hér er um að ræða svalan kokteil af glæpum, rómantík, óperu og París að næturlagi. Sannkölluð költperla sem sýnd verður í tilefni af Franskri kvikmyndahátíð á SVÖRTUM SUNNUDEGI 17. janúar kl 21.00!