dEUS │ Worst Case Versus In a Bar

dEUS │ Worst Case Versus In a Bar

Austurbæjarbíó, Snorrabraut 37, 105 Reykjavík Kort

fös. 02.10.2026 20:00

ISK 11900.00
Miðar / Skráning

Belgíska rokksveitin dEUS heldur tónleika á Íslandi.

dEUS mun stíga á svið í Austurbæjarbíó þann 2. október næstkomandi og flytja efni af fyrstu tveim plötum sveitarinnar, Worst Case Scenario (1994) og In a Bar, Under the Sea (1996). Tónleikarnir eru hluti af sérstakri tónleikaferð sem ber heitið Worst Case Versus In A Bar og hefur dEUS ferðast til útvaldra borga í Evrópu það sem af er ári. Reykjavík er síðasti viðkomustaðurinn á þessu tónleikaferðalagi.

Á dagskránni verða helstu lög platnanna, auk laga sem hafa aldrei áður verið flutt á tónleikum. Þetta er ekki aðeins nostalgíuferð, heldur endurvakning tveggja platna sem hljóma enn jafn ferskar, kraftmiklar og tímalausar og þegar þær komu út.

dEUS eru: Tom Barman, Klaas Janzoons, Stephane Misseghers, Alan Gevaert og Simen Følstad Nilsen.

Hljómsveitin Ensími mun sjá um upphitun en hún fagnar 30 ára starfsafmæli á þessu ári.

Almenn miðasala hefst 20. ágúst kl. 10:00 hjá Midix.is og er miðaverði stillt í hóf (11.900kr). Hægt er að tryggja sér miða í forsölu með því að skrá sig á póstlista midiX.

Flytjendur

  • Deus
    Deus
    In 1994 a small but vibrant Antwerp music scene meant that most alternative bands were incestuous, liquid beings; with each musician being as likely to be in five bands as one, but a mutual love of all things alternative and underground, melded five talented musicians and performers into dEUS. Since then the line-up has changed several times. At present dEUS consists of Tom Barman, Klaas Janzoons, Stéphane Misseghers, Alan Gevaert and Simen Følstad Nilsen.

    For more info, check http://www.deusmusic.be
  • Ensími
    Ensími

    Icelandic rock band