Dansfögnuður í Yogavin
Yogavin, Grensásvegur 16, 108 Reykjavík Kort
fös 27. nóv 2026 20:00
DANSFÖGNUÐUR Í YOGAVIN
Kakó, dans, tónheilun, möntrur.
Föstudag 27. nóv kl. 20.00 - 22.00
Með Ástu Arnardóttur
Verð 4900 - innifalið cacau
Skráning yoga@yogavin.is
Posi við innganginn, kort, cash eða millifærsla
Yogavin kt 4702070350
Banki 0515-26-012864
Við hefjum stundina á þakkarhring með ljúffengum hjartaopnandi kakóbolla.
Dansfögnuður í hárri tíðni og djúpum takti Shakti Ma, hjartaopnandi, útrásargefandi, upplyftandi, sálartengjandi, djúppeppandi tónlist tendrar dansgleðina. Mætum öll eins og við erum og dönsum til umbreytingar, fögnuðar og frelsls.
Tónheilun og slökun með alkemiskum skálum og gong
Ljúfar möntrur í lokin
Gott að skrá sig til að við getum áætlað fjölda ljúffengra kakóbolla
Ásta Arnardóttir leiðir kakóhring og tónheilun. Ásta hefur kennt yoga frá 1999 og stofnaði Yogavin 2014. Hún er með bakgrunn í leiklist og hefur haldið fjölbreytt námskeið í yoga, hugleiðslu, leiklist, spuna og skapandi lífstíl síðastliðin 35 ár. Ásta hefur kennt yogakennaranám frá 2010 og útskrifað á annað hundrað yogakennara. Hún er stofnfélagi í Félagi um vipassana hugleiðslu 2011 og hefur leitt kyrrðarvökur á vegum félagsins frá stofnun þess.