Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

Daníel Bjarnason stjórnar Brahms

Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort

sun. 21.02.2027 16:00

Daníel Bjarnason stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í flutningi tveggja af ástsælustu verkum Johannes Brahms: 1. sinfóníunni og Tvöfalda konsertinum fyrir fiðlu og selló. 

Brahms er gjarnan talinn einn hinna þriggja stóru B-a tónlistarsögunnar — Bach, Beethoven og Brahms — og skipar þannig sess meðal áhrifamestu tónskálda vestrænnar tónlistar. 

Einleikarar í Tvöfalda konsertinum eru hjónin Guðbjartur Hákonarson fiðluleikari og Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir sellóleikari. Margir muna eftir mögnuðum leik Mörtu í Eldborgarsal Hörpu þegar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands flutti Joker – Live to Film til heiðurs Hildi Guðnadóttur í kjölfar Grammy-, Óskars- og Emmy-verðlauna hennar. Marta er dóttir Guðmundar Óla Gunnarssonar sem stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í 23 ár og má því segja að hún hafi alist upp með hljómsveitinni.

Flytjendur

  • SinfoniaNord
    SinfoniaNord

    Icelandic symphony orchestra

  • Daniel Bjarnason
    Daniel Bjarnason

    Tónskáld og hljómsveitarstjóri sem hefur unnið með Sinfóníuhljómsveit Íslands.